Þjórsárdalur - helgarferð 18 júlí
Framundan er helgarferð um stórbrotið landslag.
Planið er að sameinast í bíla, hittast við Hjálparfoss um kl 11 laugardaginn 18 júlí, hjóla um línuveg að Sandártungu og hjóla um skógi vaxnar hlíðar aftur að bílunum. Línuvegurinn er grófur yfirferðar en skógarstígarnir auðveldir.