Aðalfundur Íslenska fjallahjólaklúbbsins 2017
Aðalfundur Íslenska fjallahjólaklúbbsins var haldinn 26. október 2017. Það var helst að frétta að rekstur félagsins gengur vel og við eigum gott starfsár að baki. Góðar ferðir voru farnar og voru öllum þáttakendum og skipuleggjendum færðar þakkir fyrir. Veglegt fréttablað ÍFHK, Hjólhesturinn kom út í vor. Þriðjudagsferðir voru farnar í allt sumar og vikulega var opið hús.